Fleiri sóló

Sunnudaginn 18. ágúst á Geitamel fór í sólóflug Kristín Hjartardóttir og flaug TF-ABS Blanik-13, sjá mynd. SFÍ félagar óska henni til hamingju með áfangann og er hún ávallt velkomin á Sandskeið.

Skarphéðinn Snorrason fór í sóló þann 20. ágúst og er honum óskað til hamingju með áfangann. Meðfylgandi er andlitssmynd af Skarphéðni og önnur tekin af honum nýlentum með prófdómara og yfirkennara. Önnur flug þetta kvöld eru ekki til frásagnar, örstutt voru þau, enn kvöldið bjargaðist með Sólóinu.

Kveðja, Þ.I.