Íslandsmeistarar

Listi yfir Íslandsmeistara í svifflugi

Jóhannes Hagan bikar

Bikar þessi var árið 1958 gefinn af þeim Arnóri Hjálmarssyni, Ásbirni Magnússyni,Guðmundi Bjarnasyni og Helga Filippussyni til minningar um Jóhannes Hagan, sem var meðal frumherja svifflugs hér á landi, en hann lést af slysförum í Kanada árið 1942.
Bikarinn hlýtur Íslandsmeistari í svifflugi.

Íslandsmót í svifflugi er haldið af Flugmálafélagi Íslands, og er einstaklingskeppni í hraða og /eða fjarlægðarflugi á svifflugum. Fyrst er haldið Íslandsmót 1958 og þá á Hellu á Rángárvöllum og hefur verið haldið þar ávalt síðan. Árið 1961 var ekki haldið mót. Ákveðið að sá svifflugmaður, er flygi lengsta yfirlandsflugið á svifflugu á tilteknu tveggja mánaða tímabili, teldist Íslandsmeistari. Mótin 1969 og 1972 urðu ógild þar eð ekki náðist tilskilinn lágmarksfjöldi gildra keppnisdaga.

Atlanta bikar

Svifflugnefndin hefur tekið þá ákvörðun að Jóhannes Hagan Bikarinn ljúki hlutverki sínu sem Íslandsmeistara bikar á tímamótum nýrar aldar og Atlanta bikarinn taki við hlutverki hans. Það er ósk Svifflugnefndarinnar FmÍ að hinn fráfarandi bikar verði tekin til varðveislu á Sandskeiði hjá Svifflugfélagi Íslands. Atlanta bikar, sem er eignarbikar, er gefinn árið 2002 af hjónunum Arngrími Jóhannssyni og Þóru Guðmundsdóttur, eigendum Atlanta, til eflingar svifflugs á Íslandi. Bikarinn hlýtur Íslandsmeistari í svifflugi. Atlanta bikar, sem er eignarbikar, er gefinn árið 2004 af Arngrími Jóhannssyni , stofnanda Atlanta, til eflingar svifflugs á Íslandi. Bikarinn hlýtur Íslandsmeistari í svifflugi.

Íslandsmeistarar í svifflugi

Röð Ár Nafn Nr flugsk svifflugfé
1 1958 Þórhallur Filippusson 533 SFÍ
2 1961 Runólfur Sigurðsson 500 SFÍ
3 1963 Sverrir Þóroddsson SFÍ
4 1967 Þórður Hafliðason 816 SFÍ
5 1970 Leifur Magnússon 332 SFÍ
6 1974 Sigmundur Andrésson 808 SFÍ
7 1976 Leifur Magnússon 332 SFÍ
8 1978 Leifur Magnússon 332 SFÍ
9 1980 Leifur Magnússon 332 SFÍ
10 1982 Leifur Magnússon 332 SFÍ
11 1984 Sigmundur Andrésson 808 SFÍ
12 1986 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
13 1988 Garðar Gíslason 1341 SFÍ
14 1990 Garðar Gíslason 1341 SFÍ
15 1992 Garðar Gíslason 1341 SAS
16 1994 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
17 1996 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
18 1998 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
19 2000 Theodór Bl Einarsson 2022 SFÍ
20 2002 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
21 2004 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
22 2006 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
23 2008 Daníel H. Stefánsson 4863 SFÍ

Ráðherrabikar

Fyrir bestan árangur í markflugi fram og til baka er veittur Ráðherrabikar. Bikar þennan gaf Ingólfur Jónsson(á Hellu) samgönguráðherra árið 1963. Verðlaunin hlýtur sá keppandinn, er að mati mótsstjórnar flýgur besta markflugið fram og tilbaka á gildu Íslandsmóti i svifflugi. Sé forgjöf notuð í keppninni, skal hún einnig notuð við ákvörðun um verðlaun þessi. Verði markflugi eigi að fullu lokið, gildir það flugið, er lengstri keppnisvegalengd náði, svo framarlega sem hún sé a.m.k. 25 km.

Handhafar hans hafa verið eftirfarandi:

Röð Ár Nafn Nr flugsk svifflugfé
1 1963 Sverrir Þóroddsson SFÍ
2 1967 Þórhallur Filippusson 533 SFÍ
3 1970 Leifur Magnússon 332 SFÍ
4 1974 Leifur Magnússon 332 SFÍ
5 1976 Leifur Magnússon 332 SFÍ
6 1978 Leifur Magnússon 332 SFÍ
7 1980 Garðar Gíslason 1341 SFÍ
8 1982 Þorgeir L.Árnason 1628 SFÍ
9 1986 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
10 1988 Thomas Knauff Gestur
11 1990 Magnús I. Óskarsson 2359 SFÍ
12 1992 Sigtryggur Sigtryggsson SFA
1994 Ekkert skráð á bikar
13 1996 Fannar Sverrisson SFÍ
14 1998 Þórður Hafliðason 816 SFÍ
15 2000 Theodór Einarsson 2022 SFÍ
16 2002 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
17 2004 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
18 2008 Daníel. H Stefánsson 4863 SFÍ

Pfaff-skál

Skál þessa gaf Verslunin Pfaff hf.,Reykjavík árið 1969. Verðlaunin hlýtur sá keppandinn, er að mati mótsstjórnar nær bestum árangri í 100 km þríhyrningsflugi á gildu Íslandsmóti í svifflugi. Sé forgjöf notuð í keppninni, skal hún einnig notuð við ákvörðun um verðlaun þessi. Verði þríhyrningsflugi eigi að fullu lokið, gildir það flugið, er lengstri keppnisvegalengd náði, svo framarlega sem hún sé a.m.k. 25 km.

Handhafar hennar hafa verið eftirfarandi;

Röð Ár Nafn Nr flugsk Félag
1 1974 Leifur Magnússon 332 SFÍ
2 1976 Leifur Magnússon 332 SFÍ
3 1980 Leifur Magnússon 332 SFÍ
4 1982 Baldur Jónsson 461 SFÍ
5 1984 Thomas Knauff Gestur
6 1986 Eggert Norðdahl 2189 SFÍ
7 1988 Garðar Gíslason 1341 SFÍ
8 1990 Garðar Gíslason 1341 SAS
9 1992 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
10 1994 Baldur Jónssson 461 SAS
11 1996 Þorgeir L.Árnason 1628 SFÍ
12 1998 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
13 2000 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
14 2002 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
15 2004 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
16 2006 Stefán S. Sigurðsson 1621 SFÍ
17 2008 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ

Olísbikar Póstflug veittur fyrst 1990

Röð Ár Nafn Nr flugsk Félag
1 1990 Þorgeir L.Árnason 1628 SFÍ
2 1992 Garðar Gíslason 1341 SAS
3 1994 Magnús Ingi Óskarsson 2359 SFÍ
4 1996 Theodór Einarsson 2022 SFÍ
5 1998 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
6 2000 Ekki gildur keppnisdagur
7 2002 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ
8 2004 Kristján Sveinbjörnsson 1742 SFÍ
9 2006 Steinþór Skúlason 1812 SFÍ