Helgina kringum 2-3 júlí nk ætlar Svifflugnefnd FMÍ  í samvinnu við stjórn SFÍ og staðarhaldara að gangast fyrir svifflugútilegu  á Geitamel. Til vara er helgin eftir ef veðurútlit er óheppilegt. Þetta er  endurtekning á svipuðum viðburði sem haldinn var í fyrra og tókst einkar vel og  skilaði mörgum góðum yfirlandsflugum. 
Ef vel viðrar verða sett verkefni fyrir báða daga  og rifjuð upp stemming frá Íslandsmótum. 
Við vonumst eftir góðri þáttöku og að sem flestir  njóti góðrar samveru og flugskilyrða austur í sveitum.
Svifflugnefnd FMÍ
         
     
    
    
