Reglur fyrir Árskeppni FmÍ-2- í svifflugi.
- Flugmálafélag Íslands (FmÍ) efnir ár hvert til Árskeppni FmÍ i sviffugi.Keppnistímabilið er frá 1.október til 30 september að báðum dögum meðtöldum.
- Tilgangur keppninnar er að hvetja til aukins yfirlandsflugs á svifflugum.
- Þáttaka er heimil svifflugmönnum, sem eru fullgildir meðlimir í FmÍ eða aðildarfélagi þess.
- Keppendur skulu hafa skírteini svifflugmanns sem er útgefið af flugmálastjórn.
- Keppnin er einstaklingskeppni og gilda fyrir hana hinar almennu reglur Fédération Aéronautique Internationale (FAI) og leikreglur svifflugmanna (spotring Code, D-section) Metin verða til stiga tvö bestu yfirlandsflug hvers keppanda sem flogin eru á Íslandi. Undanskilin eru þó flug, sem flogin eru á Íslandsmóti FmÍ í svifflugi.
- Stig verða veitt fyrir keppnisflug á eftirfarandi hátt:
a. Langflug (í beina línu) 1,00 stig/km
b. Markflug 1,50 stig/km
c. Markflug fram og tilbaka 1,75 stig/km
d. Þríhyrningsflug 2,00 stig/km
- Aðeins þau flug verða metin til keppninnar, sem ná a.m.k. 50 stigum.
- Ef marki er ekki náð í flugi, sem tilkynnt var sem markflug, verða veitt 1.00 stig/km.
- Ef ekki er náð tilbaka að brottfarapunkti í flugi, sem tilkynnt var sem markflug fram og tilbaka, verða veitt 1,50 stig/km að hornpunkti, en þaðan 1,00 stig/km
- Ef ekki er náð til baka að brottfararpunkti í flug, sem tilkynnt var sem þríhyrningsflug, verða veitt 1,50 stig/km að náðum hornpunktum, en þaðan 1,00 stig/km.
- Um meðferð allra gagna, eins og flugyfirlýsingu, flugtaksvottorðs, pappírs úr hæðarrita gilda sömu reglur og fram koma í leikreglum svifflugmanna. Einnig gilda leikreglur svifflugmanna um brautir og ljósmyndun.
- Tilkynna skal Svifflugnefnd FmÍ. Eigi síðar en 1.nóvember ár hvert um þau flug, sem meta á til stiga í keppninni.
- Sigurvegari telst sá svifflugmaður, sem hæsta stigatölu hlýtur samkvæmt 5.grein. Ber hann titilinn Ársmeistari í svifflugi það árið sem keppnin fór fram.