Búnaður Svifflugfélags Íslands
TF-SAA
Gerð Super Dimona
Vænghaf 16,33m
Lengd 7,28m
Hámarkshraði 261km
Svifhorn 27
Super Dimonan hefur verið mjög vinsæl meðal félagsmanna enda er þetta einstaklega öflug vél, vélin er búin 115 hestafla mótor sem gerir að verkum að hún jafnast á við bestu einkavélar hvað varðar mótorflug ástamt því að hægt er að drepa á hreyflinum og svífa á við miðlungs svifflugur. Vélin er tveggja sæta og því oft notuð til að taka með gesti.
TF-SAB
Gerð K-7
Vænghaf 16m
Lengd 8,15m
Hámarkshraði 170km
Svifhorn 26
Hraðarit
Smíðuð hjá Alexander Schleicher í Þýskalandi árið 1964 og keypt notuð til landsins árið 1981. Hún er tveggja sæta og var mest notuð í kennsluflug. Henni var lagt eftir tilkomu TF-SAS Duo Discus en þá leysti TF-SAC þessa vél af hólmi sem aðal kennsluvél félagsins.
TF-SAC
Gerð ASK 21
Vænghaf 17m
Lengd 8,35m
Hámarkshraði 280km
Svifhorn 34
Hraðarit
Handbók
Hún var keypt ný frá Alexander Schleicher í Þýskalandi 1995. Hún er tveggja sæta og mikið notuð í kynningar- og kennsluflug. Þá hafa félagsmenn einnig nýtt hana þegar þeir flúga með sína gesti. Leyfilegt er að fljúga listflug á þessari svifflugu og hafa sumir félagsmenn nýtt sér það.
TF-SAE
Gerð Ka-6E
Vænghaf 15 m
Lengd 6,66m
Hámarkshraði 200km
Svifhorn 34
Hraðarit
Hún smíðuð árið 1969 hjá Alexander Schleicher í Þýskalandi og var keypt notuð þaðan árið 1978. Þótt TF-SAE sé komin til ára sinna er hún afar skemmtileg og töluvert notuð. Hún var til skamms tíma ein besta einsæta félagsins og var þá eiginlega eina einsæta félagsins sem nothæf var til yfirlandsflugs. TF-SAE er létt, lipur og næm á allar aðgerðir flugmannsins. Leifur Magnússon varð Íslandsmeistari á TF-SAE árin 1980 og 1982.
TF-SAL
Gerð LS-4
Vænghaf 15m
Lengd 6,84m
Hámarkshraði 270km
Svifhorn 40
Hraðarit
Handbók
Þessi sviffluga var keypt notuð frá Segelfluggruppe Lenzburg í Sviss, árið 1999. Hún er einsæta af gerðinni LS-4 og er framleidd af Rolladen-Schneider í Þýskalandi árið 1982. Þetta er tvímælalaust langbesta sviffluga félagsins.
Ath. að þyngdartakmörk flugmanns í SAL eru önnur en í handbók.
TF-SAR
Gerð Ka-8b
Vænghaf 15m
Lengd 7m
Hámarkshraði 190km
Svifhorn 27
Ein af tveim Ka-8 vélum félagsins. Var notuð fyrir sólóflugmenn. Hun var smíðuð hjá Alexander Schleicher árið 1961. Ka-8 eru einstaklega þægilegar - sterkar og góðar byrjendasvifflugur og henta vel til flugs í veikum skilyrðum. Hægfleygar, léttar og liprar. Þessi sviffluga hefur ekki verið notuð undanfarið eftir að unnt var að anna eftirspurn með nýtískulegti vélum.
TF-SAS
Gerð Duo Discus Turbo
Vænghaf 20m
Lengd 8,62m
Hámarkshraði 250km
Svifhorn 45
Hraðarit
Hún var keypt notuð frá Þýskalandi 2006 í mjög góðu ástandi og lítur út eins og ný. Hún er tveggja sæta og hefur gríðarlega góða útflugseiginleika. Hún er með lítinn mótor sem hægt að setja út og nota til að hækka flug ef ekki finnst uppstreymi, það gerir hana að spennandi kosti jafnt fyrir þá sem eru að spreyta sig á sínum fyrstu útflugum og reyndari flugmenn félagsins.
TF-SAV
Gerð Ka-8b
Vænghaf 15m
Lengd 7m
Hámarkshraði 190km
Svifhorn 27
Önnur af tveim Ka-8 vélum félagsins. Var notuð fyrir sólóflugmenn. Hún var smíðuð hjá Alexander Schleicher árið 1961. Ka-8 eru einstaklega þægilegar - sterkar og góðar byrjendasvifflugur sem henta vel til flugs í lélegum skilyrðum. Hægfleygar, léttar og liprar. Þessi sviffluga hefur ekki verið notuð undanfarið eftir að unnt var að anna eftirspurn með nýtískulegti vélum.
TF-SAX
Gerð LS-8
Vænghaf 15m
Lengd 6,66m
Hámarkshraði 280km
Svifhorn 43(15m) / 48(18m)
Handbók
LS-8 er frábær viðbót við sviffluguflotann, möguleiki er að lengja væng sem gefur rennigildið 1:48. Árið eftir að svifflugan kom á markað urðu svifflugmenn á LS-8 í toppsætum í Heimsmeistarakeppninni (1995). Það má segja að LS-8 sé afbragðsgóð sviffluga, enda trónir hún enn í efstu sætum fjölmargra móta.
TF-TUG
Gerð Piper Pawnee
Vænghaf 11,02m
Lengd 7,55m
Hámarkshraði 188km
TF-TUG oftast nefnd "Tuggan" eða "Unna Gunna" sér um að draga svifflugur í loftið, kostirnir við flugtog umfram spiltog eru þeir að hægt er að sleppa í meiri hæð og einnig er hægt að draga svifflugur umtalsverðar vegalengdir áður en sleppt er. Einnig hefur Tuggan verið notuð til þess að draga svifflugur á loft af túnum þar sem að þær hafa lent sökum skorts á uppstreymi.
Vírus
Gerð Ford F350 L6 300 ci
Hámarkshraði 40km
Vírus sér um að draga vírana úr spilinu yfir endilanga brautinna þar sem svifflugurnar bíða, einnig er hann notaður til að draga svifflugur til og frá skýlum.
Spilið
Gerð Bíll Ford F600 og spilið Chervolet 327 ci og powerglide skipting
Hámarkshraði 160km
Spil bílinn okkar sér um öll spiltog á sandskeiði, hann er búinn tveim 1000 metra vírum sem hvor um sig getur dregið svifflugur í um 300 metra hæð.